|
|
27.09.2006 18:43:36 / Nóra
Halló halló, allir sem kíkja hér!
Einsog hún Jenný hefur áður sagt, er þessi síða eiginlega
alveg hætt, nema þegar stór atburðir gerast eða til að láta vita að
við erum enn á lífi!
En núna hefur sko alldeilis stór atburður gerst. Og okkur finnst
það ekki hætist hót skemmtilegt Fjölskyldan okkar er flutt til
Svíþjóðar. Við urðum eftir heima, og við söknum þeirra allveg
voðalega mikið. En við vitum að það er best fyrir okkur að vera
hér. Jenný sagði okkur nefnilega að það væri miklu heitara þarna
úti en við erum vön hérna heima, og það yrði nú alldeilis ekki gott
fyrir Bono, með allann sinn feld! Síðan þá þyrftum við að fara í
langa einangrun þegar við kæmum inní Svíþjóð, liggja alein í
ókunnugu húsi, og ganga svo í gegnum það sama þegar við kæmum heim
til íslands. Síðan sagði hún líka eitt sem okkur leist ekkert á,
það var að það er ekki hægt að hlaupa laus þaran úti, útaf það eru
engin fjöll eða svona staðir þar sem er óhætt að fá að hlaupa. Auk
þess, þá fara tvífætlingarnir líka heim í sumum fríum, og hvar
ættum við þá að vera?
Við komumst því að þeirri niðurstöðu, að það væri bara best fyrir
okkur að vera í pössun heima.
Hún Nóra fór til ræktandans síns, Ásgeirs Heiðars. Hann er
tvífætlingurinn hennar Donnu sem er mamma Nóru, og Dixiear sem er
líka enskur pointer. Dixie og Nóra eru orðnar bestu vinkonur og
kúra alltaf saman. Þær fá að hlaupa lausar allar á hverjum degi og
veiða rjúpur oft oft. Það finnst Nóru nú gaman.
Bono er hjá Ömmu Guggu. Þar finnst honum gott að vera. Hann
þekkir sig alveg um þar og labbar með ömmu uppí fjalli á hverjum
degi. Síðan koma þau heim og kúra saman uppí sófa. Þegar amma fór í
heimsókn til Svíþjóðar fór hann í pössun til Fjalars og Molders,
það var nú stuð!
En við söknum allra tvífætlinganna okkar voðalega mikið, og
hlökkum til að hitta þau í sumar. Og við fáum meira að segja að
hitta Jenný fyrr, því hún ætlar að koma heim um áramótin, það
verður sko gaman!
Við biðjum bara voðalega vel að heilsa til Svíþjóðar
Yfir og út
Bono og Nóra
»
24.02.2006 17:29:55 / bono
Hæhæ! Þetta er Bono núna
Ég er útá Dalvík vegna þess að Nóra er að lóða. Það er sko alveg
frábært að koma í svona einkadekur til ömmu, híhí
En talandi um Nóru, hún er að far aá sína fyrstu sýningu í mars.
Hún og mamma eru búnar að vera alveg gasalega duglegar að æfa sig,
því nú er HRFÍ komið með svæðadeild hingað norður, og stundum förum
við Jenný með.
Við erum búin að eignast nýja vinkonu. Hún heitir Lóla og er
Border Collier hvolpa krútt. Hún og Nóra eru mjög góðar vinkonur.
Mér finnst hún alveg ágæt, en ég held að þú verði skemmtilegri
þegar hún eldist, þegar hún hættir að bíta í eyrun mín... : P
Bless í bili
Bono
»
06.10.2005 09:41:05 / bono
Hæ!
Um síðustu helgi fórum ég, Bono og Jenný í bílinn. Mamma
skutlaði okkur eitthvað og þegar við komum út vorum við komin á
ókunnugan stað. Við dingluðum og fórum inn. Og þar var svona líka
sæt cavalier stelpa sem heitir Nína, og er hálfsystir mín.
Bekkjarsystir Jennýjar, hún Aldís á hana, og þær ákváðu að
fara með okkur út í göngutúr. Við löbbuðum í næstum því klukkutíma
út um allar trissur, og auðvitað lékum við Nína okkur alveg
helling. Síðan löbbuðum við aftur heim til Aldísar. Þá fórum við
inn og við hundarnir vorum látin þorna. Þegar við vorum orðin þurr,
héldum við áfram að leika okkur, og það var alveg brjálað stuð
alveg þangað til við fórum heim. Það var rosalega gaman í heimsókn
hjá henni Nínu! Hér koma svo nokkrar myndir!

Nína sæta

Ég og Helena

Ég og Nína að kúra.
Daginn eftir fórum við út á Dalvík. Við keyrðum að húsi sem ég
aldeilis þekkti! Þar búa þeir Molder og Fjalar vinir mínir! Við
mamma ákváðum að skreppa aðeins í heimsókn hjá þeim. Það var
rosalega gaman að hitta þá, og ég vona að við eigum eftir að hitta
þá aftur núna um helgina, af því að við verðum útá Dalvík hjá ömmu
Guggu.
Núna ætlar hún Nóra að fá að segja eitthvað.
Hæ!
Mér gengur bara vel að æfa mig í rjúpunum núna, pabbi fer með
okkur nánast á hverjum degi eitthvað upp á heiði. Í gær klippti
hann neglurnar á mér, og ég var rosalega dugleg, stóð næstum því
alveg kyrr. Mamma og pabbi eru að fara til Búdapest fram á Mánudag,
og á meðan verð ég í pössun hjá Rúnu og Hauk. Þau eiga Baron
labrador og Svölu Shar pei. Það verður rosalega gaman að fá að
leika með þeim í 5 daga! En á meðan verður Bono hjá ömmu Guggu.
Fyrst að Bono fékk að setja inn svona margar myndir af sér og Nínu,
þá ætlar Jenný að skella inn einni nýlegri mynd af mér

Bless í bili!
Bno og Nóra
»
11.09.2005 13:11:31 / bono
Halló kæru vinir!
Nú ætlum við að byrja að blogga aftur.Það koma kannski ekki mörg
blogg, en við ætlum samt að láta vita af okkur annað slagið. Í
sumar höfum við bara haft það gott og það hefur verið mög
gaman.
En nú verðum við að monta okkur aðeins, hún Nóra var í
veiðiprófi með pabba uppi á Auðkúluheiði um helgina. Þetta var
hennar fyrsta próf, en hvað haldiði, hún rúllar þessu svona
upp! Fékk fyrstu einkunn fyrri daginn og aðra einkunn seinni
daginn! Hún var líka valin hundur prófsinns báða dagana í sínum
flokki. Einn dómarinn sagði við pabba að það hafi tekið hann 10 ár
að ná sama árangri og við náðum núna. Ég, Nóra, er fyrsti hundurinn
hanns pabba, þetta var fyrsta prófið mitt, og það er glæsilegt að
hafa náð þessum árangri.Við erum öll alsæl og alveg að springa úr
stolti hér á heimilinu.
Við látum svo fylgja með eina mynd af Nóru,

Kærar kveðjur
Bono og Nóra
»
12.05.2005 19:53:56 / bono
JI!
Rosalega er mikið að gera hjá henni Jennýju!
Við erum komin heim af sýningunni. Í opnum flokki fékk ég, Bono
1. einkunn og góða umsögn, sem Jenný ætlar að setja inn seinna.
Þegar Jenný var svo að sýna mig í ungum sýnendum, þá fór allt í
vaskinn því að það var lóðatík fyrir aftan okkur. Ég var svo
ægilega skotinn í henni, snéri alltaf vitlaust og var að reyna að
tala við hana. En það gengur bara betur næst!
Í dag fóru Jenný og Eva svo með mig út í göngutúr, niður á
eitthvað tún og þar voru þær að leika við mig í góða veðrinu. Nú fæ
ég nefnilega ekki að fara oft með pabba og Nóru út, af því að Nóra
þarf að æfa sig í að finna rjúpur, en ég kem samt stundum með.
Annars fara bara mamma eða Jenný með mig út.
Okkur þykir það voðalega leiðinlegt, en það verður örugglega
ekki mikið um blogg núna á næstunni af því að nú eru prófin hjá
mömmu að byrja og næstu 2-3 vikur verður hún alveg á kafi að læra
fyrir þau, púff!
Jæja, bless í bili!
Bono og Nóra

»
01.05.2005 12:11:59 / bono
Ahhh....
Við vorum að frétta að á Dalvík sé snjór! Hann hefur sem betur
fer ekki látið sjá sig núna hjá okkur. En Nóra fór ekki á
veiðiprófið, en pabbi ætlar að fara með han seinna 
Hér á bæ er orðinn verulega mikill spenningur fyrir sýningunni
og við farin að æfa okkur. Mér (Bono) finnst svo gaman að æfa af
því að ef að ég er duglegur fæ ég smá seríos og mér finnst það
alveg rosalega gott! Annars er bara allt gott að frétta og eru
tvífætlingarnir boðnir í mat hjá ömmu og afa á Dalvík í kvöld. Við
verðum þá að bíða í bílnum af því að amma er með ofnæmi fyrir
hundum, sem henni finnst voðalega leiðinlegt. En við fáum líklega
að dandalast eitthvað úti, fyrir eða eftir mat með Jenný.
Jæja, við ætlum að fara að fara og æfa okkur.
Bestu kveðjur
Bono
»
26.04.2005 17:51:30 / bono
Allamalla!
Við erum nú bara alveg hneyksluð á henni Jenný! Hún bara fæst
ekki til að fara í tölvuna! Hún vill bara vera úti með okkur þegar
veðrið er svona gott og hefur barasta engann tíma til
að fara í tölvuna. Og já, GEÐILEGT SUMAR!!!!
En mamma og pabbi, þau fóru til Danmerkur 22-26 apríl og á meðan
vorum við á Dalvík. Jenný, Haukur og Bono voru hjá ömmu Guggu en
Nóra var hjá Svölu og Baron, og tvífætlingunum þeirra. Það var
alveg brjálað stuð á okkur og Bono fór að hitta Fjalar og Molder og
fleira en Nóra skemmti sér konunglega með Svölu og Baron. Núna erum
við komin heim og erum komin á fullt í ljósmyndasamkeppni Besta
Vinar.com. Reyndar misstum við af fyrsta þemanu af því að mamma og
pabbi fóru með myndavélina til Danmerkur en það er allt í lagi

Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Það eru bara 2
vikur í sýninguna, vá hvað við erum farin að hlakka til! Og um
næstu helgi fer Nóra kannski á veiðipróf, það er ekki alveg
ákveðið.
Bless í bili
Bono og Nóra í sumarstuði
»
10.04.2005 19:17:11 / bono
Halló!!
Í dag, 10 apríl er ég þriggja ára! Vá, tíminn er búinn að vera
svo fljótur að líða.
Ég er búinn að eiga alveg frábæran afmælisdag. Þegar ég vaknaði
í morgun hoppaði ég beint upp í sófa og fékk rosa dekur hjá Jenný.
Þegar klukkan var að verða 12 fékk ég svo eina pylsu, nammi
hvað hún var góð! Síðan þá fórum ég , Jenný, Eva og Fiona út að
labba. Við vorum að hjálpa Evu að bera út Fréttablaðið og ég var
alveg obboslega duglegur. Þegar við komum heim var ég bara að kúra
niðri í bæli og láta mig þorna. Jenný skrapp svo aðeins út og ég
hafði það bara gott i kúri á meðan. Þegar hún kom heim var næstum
því kominn matur og ég beð bara frammi á meðan tvífætlingarnir voru
að borða. Það var voðalega girnilegt lambalæri í kvöldmatinn. Þegar
allir voru búnir að borða setti mamma smá kjöt og franskar í skál
og fór niður. Ég elti hana niður í bæli. Þá söng hún afmælissönginn
fyir mig og ég fékk að borða allt sem var í skálinni! Lambakjöt er
sko besti matur í heiminum!! Jenný segir að við höfum ekki komist
út að hlaupa í dag af því að það er verið að mála hjá okkur, en við
förum í góðan hlaupitúr einkverntíman á næstunni, á morgun eða hinn
Núna á eftir þá ætlum við bara að hafa það gott og ég ætla sko
að fá dekur!

Allra bestu afmæliskveðjur
Bono
»
08.04.2005 14:03:44 / bono
Halló allir!
Nú er ég, Nóra komin heim og ætla að segja ykkur ferðasögunu í
grófum dráttum. Skomm, fyrst þá vorum við lengi lengi í bílnum.
Síðan þá vorum við bara komin til Reykjavíkur og þá fór pabbi með
mig út að labba. Það var voðalega gaman og ég hljóp út um
allt! Þegar labbitúrinn vara búinn fórum við heim í íbúðina
þar sem við gistum og vorum bara að slappa af þangað til við fórum
að sofa. Næsta dag vorum við í bílnum og tvífætlingarnir voru að
skoða bíla, síðan fórum við pabbi aftur í ekki síðri göngutúr en
þann fyrri. Á laugardeginum fórum við svo í veiðiprófið. Það var
voðalega gaman og lærdómsríkt þar og ég hlakka mikið til að fara að
keppa á svoleiðis. Ég sá líka rjúpur og var voða dugleg að taka
stand á þær. Jæja, núna vill hann bono bróðir fá að skrifa
líka.
Hæ, Bono hér!
Af mér er allt gott að frétta. Í gær fórum við Jenný út í
snjóinn sem er kominn að leika. Það vara voða gaman og ég var
orðinn alger snjóhundur þegar ég kom inn! En ég hef líka soltlar
fréttir handa ykkur! Nú er búið að skrá mig á Afmælissýningu
cavalierdeildarinnar. Mamma ætlar að sýna mig á sunnudeginum
en Jenný fær að sýna mig í ungum sýnendum á laugardeginum. Hún er í
skýjunum og hlakkar voðalega mikið til, ég er líka mjög spenntur og
hlakka til að hitta alla cavalierana! Núna er hún svo að fara að
æfa sig og mig í að ganga í sýningartaumi og allt sem sýningum
fylgir!
Allra best veiðiprófs og sýningarkveðjur
Bono og Nóra!
»
02.04.2005 20:06:20 / bono
Halló allir saman!
Í gær fórum við Jenný til Ömmu Guggu. Við kúrðum bara heima um
kvöldið og höfðum það gott. Snemma í morgun þegar amma var farin í
vinnuna laumaði ég mér upp í rúm til Jennýjar og kúrði þar þangað
til hún vaknaði. Síðn fórum við á fætur og drifum okkur svo út að
labba. Á leiðinni voru fullt fullt af snjótitlingum sem mig langaði
svo óskaplega mikið að tala við, en þeir fluga bara alltaf í burtu
áður en ég náði að segja þeim að ég vildi bara leika við þá...
Förinni var heitið upp á Dalbæ, elliheimilið þar sem amma er
kokkur. Þegar við komum þangað voru allir voða glaðir að sjá mig og
ég fékk slátur, kex og bein, því allir vildu gefa mér smá, tíhí
Jenný fékk sér að borða og síðan fórum fram og allt gamla fólkið
var svo ánægt að sjá mig. Síðan var ein gömul kona sem Jenný sagði
að væri voða hrifin af hundum, hún hét Setta. Hún var í hjólastól
og þegar ég fór að tala við hana liftu konurnar sem vinna á
Dalbæ mér upp í stólinn til hennar. Mér fannst svo gott að kúra í
fanginu á henni, og það var meira að segja tekin mynd af okkur! Nú
síðan þá var Setta að fara að fá sér blund, og ég fór með í
hjólastólnum! Síðan var okkur ekið um alla ganga og enduðum svo
fyrir framan herbrgi þar sem við fórum inn. Setta fór upp í rúm og
ég lagðist til fóta hjá henni. Þegar klukkan var orðin 2 ákváðum
við Jenný svo að drífa okkur og kvöddum Settu og alla hina á Dalbæ,
en við ætlum aftur þangað á morgun.
Nú þegar við komum aftur út fórum við aftur að labba og enduðum
fyrir framan hús sem ég þekki sko mætavel, það var húsið þeirra
Molders og Fjalars! við fórum þar inn og við strákarnir vorum að
leika okkur á fullu. Síðan fórum við inní herbergi að kúra á meðan
stelpurnar spjölluðu. Þegar við fórum aftur fram í stofu var þar
páfagaukur sem er í pössun hjá Molder og Fjalari, hann heitir Rjómi
og var alveg snjóhvítur. Nú fyrst að snjótittlingarnir vildu ekki
leika við mig í morgun myndi kannski Rjómi vilja það, svo ég var að
reina að tala aðeins við hann. en allt fór á sömuleið og hann flaug
bara í burtu..... Klukkan 6 fórum við svo heim í Dalsmynni og ég
fór í bað, því ég var orðinn svo skítugur. Núna er ég svo bara að
kúra upp í sófa á meðan Jenný er að dandalast einkverstaðar
úti.
Á morgun kemur svo ferða sagan hennar Nóru því hún var að
koma heim.
Bestu kveðjur
Bono
»
02.04.2005 20:06:20 / bono
Halló allir saman!
Í gær fórum við Jenný til Ömmu Guggu. Við kúrðum bara heima um
kvöldið og höfðum það gott. Snemma í morgun þegar amma var farin í
vinnuna laumaði ég mér upp í rúm til Jennýjar og kúrði þar þangað
til hún vaknaði. Síðn fórum við á fætur og drifum okkur svo út að
labba. Á leiðinni voru fullt fullt af snjótitlingum sem mig langaði
svo óskaplega mikið að tala við, en þeir fluga bara alltaf í burtu
áður en ég náði að segja þeim að ég vildi bara leika við þá...
Förinni var heitið upp á Dalbæ, elliheimilið þar sem amma er
kokkur. Þegar við komum þangað voru allir voða glaðir að sjá mig og
ég fékk slátur, kex og bein, því allir vildu gefa mér smá, tíhí
Jenný fékk sér að borða og síðan fórum fram og allt gamla fólkið
var svo ánægt að sjá mig. Síðan var ein gömul kona sem Jenný sagði
að væri voða hrifin af hundum, hún hét Setta. Hún var í hjólastól
og þegar ég fór að tala við hana liftu konurnar sem vinna á
Dalbæ mér upp í stólinn til hennar. Mér fannst svo gott að kúra í
fanginu á henni, og það var meira að segja tekin mynd af okkur! Nú
síðan þá var Setta að fara að fá sér blund, og ég fór með í
hjólastólnum! Síðan var okkur ekið um alla ganga og enduðum svo
fyrir framan herbrgi þar sem við fórum inn. Setta fór upp í rúm og
ég lagðist til fóta hjá henni. Þegar klukkan var orðin 2 ákváðum
við Jenný svo að drífa okkur og kvöddum Settu og alla hina á Dalbæ,
en við ætlum aftur þangað á morgun.
Nú þegar við komum aftur út fórum við aftur að labba og enduðum
fyrir framan hús sem ég þekki sko mætavel, það var húsið þeirra
Molders og Fjalars! við fórum þar inn og við strákarnir vorum að
leika okkur á fullu. Síðan fórum við inní herbergi að kúra á meðan
stelpurnar spjölluðu. Þegar við fórum aftur fram í stofu var þar
páfagaukur sem er í pössun hjá Molder og Fjalari, hann heitir Rjómi
og var alveg snjóhvítur. Nú fyrst að snjótittlingarnir vildu ekki
leika við mig í morgun myndi kannski Rjómi vilja það, svo ég var að
reina að tala aðeins við hann. en allt fór á sömuleið og hann flaug
bara í burtu..... Klukkan 6 fórum við svo heim í Dalsmynni og ég
fór í bað, því ég var orðinn svo skítugur. Núna er ég svo bara að
kúra upp í sófa á meðan Jenný er að dandalast einkverstaðar
úti.
Á morgun kemur svo ferða sagan hennar Nóru því hún var að
koma heim.
Bestu kveðjur
Bono
»
31.03.2005 15:09:54 / bono
Voffidí voff voff!
Hæhæ allir! N'una er hún Nóra farin til Reykjavíkur. Hún fór
þangað til að skoða veiðipróf, af því að einkverntíman þegar hún er
orðin eldri fer hún að keppa á svona veiðiprófum.
En á ég að segja ykkur hvað ég er heppinn!! Ég fæ að fara á
afmælissýningu cavalierdeidarinnar af því að ég verð í RVK þegar
hún er. Ég þarf nefnilega að fara í augnskoðun og fæ að sýna í
leiðinni! Hún mamma sýnir mig en kannski, bara kannski, fær Jenný
líka að sýna mig í ungum sýnendum, henni finnst það svo gaman Ég
er ekkert smá spenntur að hitta alla cavalierana!
En bless í bili
Bono
»
28.03.2005 18:04:11 / bono
.... Ský, ský burt með þig. Gott er í sólinni að gleðja sig,
sól, sól skín á mig!
Góðan og blessaðan daginn elsku vinir!
Það er sko búin að vera blessuð blíðan í dag! Í morgun fóru
tvífætlingarnir í sund og voru í enhverjum heimsóknum til klukkan
4. Síðan komu þau heim og Pabbi fór með okkur niður í fjöru. Þar
var voða gaman og pabbi var að æfa Nóru í innkalli og flautustoppi.
Þgar við komum heim fórum við í bað af því að hundur verður svo
voðalega skítugur í svona fjörum. Núna er Nóra úti í garði að
hjálpa pabba að þrífa til þar en Bono há mömmu að hjálpa henni að
þrífa bílinn.
En finnst ykkur ekkert skrítið að það sé svona gott veður, og
það sé bara mars? Stundum er bara mikill snjór í mars en ekki
núna, bara sól og sumarylur.
Bestu kveðjur
Bono og Nóra í sólskinsskapi
»
27.03.2005 21:29:56 / bono
Gleðilega páska elsku vinir!!
Í morgun voru Jenný og Haukur útá Dalvík af því að mamma og
pabbi voru að vinna. Þegar þau komu heim voru þau með einkver voða
girnilega páskaegg, úr súkkulaði, og þess vegna máttum við ekki
smakka. Síðan þá fór ég, Bono aðeins að þefa af mömmu og viti
hundar, það var Molders og Fjalars lykt af henni! Hún hefur þá
verið að hitta þá, og ég ekki með! Ohh... En hún ákvað að bæta mér
það upp og við fórum bara í göngutúr í góða veðrinu, Nóra fór með
pabba í morgun. Við löbbuðum út um allar trissur í blíðunni.
Klukkan 7 fórum við inn því að nú var páskamatur. Það var alveg
voða fínt lambalæri í matinn og tvífætlingunum fannst þetta alveg
voða gott. En af því að við erum svo frábær fengum við smá bita,
tíhí...
Núna erum við orðin svo obboslega þreitt eftir þennan
skemmtilega páskadag að við ætlum að fara að lúlla.
Páskalegar páskakveðjur
Bono og Nóra í páskastuði!
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|